Púst - þjónustuverð
Útblásturkerfi bíla sem oftast er kallað púst eða pústkerfi. Megin tilgangur pústkerfa er að draga úr hávaða og útblástursmengun bíla. Í hverjum bíl getur eitt pústkerfi verið allt að 6 einingar en þó algengast að þeir séu 2-4.
Pústefnið sem BJB býður er gæða efni framleitt undir ströngum E-stöðlum sem þýðir að varan hefur verið prófuð og uppfyllir OE(M) (Orginal Equipment) staðal. Prófið felur í sér að varan uppfyllir mengunarstaðal, hljóð- og loftmengun auk þess að afl og eyðsla breytist ekki.
Á framröri er oft hvarfakútur, stundum nefndur mengunarkútur. Því næst er millirör en á því getur líka verið hljóðkútur eða túpa þá kallaður millikútur. Aftasti hluti kerfisins er stundum með hljóðkút sem kallast afturkútur.
Hvarfa- eða mengunarkútur breytir útblæstri bíla sjá skýringarmynd! Skylda er að hafa slíka kúta í öllum bílum framleiddum 1995 og nýrri.
ATH. Bílaumboð og önnur verkstæði senda bíla í einhverjum tilvikum til BJB Pústþjónustunnar, þegar viðvörunar ljós kviknar í mælaborði fyrir vélarskoðun. Fram kemur í tölvu þessarar verkstæða að ekki finnst ástæða fyrir bilun eða að greining er ekki áræðanleg. Ástæðan getur verið að um stíflaðan hvarfakút sé að ræða, en þó er það ekki algilt. BJB ber ekki ábyrgð á slíkri greiningu og er það því alfarið á ábyrgð eiganda bílsins, sé óskað eftir skiptum á hvarfakút vegna slíkrar greiningar.
Athugið að hér er einungis verð á vinnu án efnis eða varahluta.






