Þjónustuþættir BJB og þjónustuverð

Aukin þjónustaBJB hefur aukið þjónusuna svo um munar. Veldu þjónustuþátt á listanum hér fyrir neðan og smelltu á fyrirsagnirnar til að lesa meira um viðkomandi þjónustuþátt og sjá verðlista hverrar þjónustu fyrir sig.

Dekk - þjónustuverð

DekkDekk eru ein af mikilvægustu öryggisþáttum bílssins. Pústþjónustan mun kappkosta að bjóða viðskiptavinum sínum eingöngu viðurkenndar vörur með 2ja ára ábyrgð. Val á dekkjum miðast við stærð, þyngd og gerð hvers bíls.

 

Púst - þjónustuverð

Púst Útblásturkerfi bíla sem oftast er kallað púst eða pústkerfi. Megin tilgangur pústkerfa er að draga úr hávaða og útblástursmengun bíla. Í hverjum bíl getur eitt pústkerfi verið allt að 6 einingar en þó algengast að þeir séu 2-4.

 

Smurning - þjónustuverð

SmurningSmurning er ein af mikilvægustu viðhaldsþáttum bílssins. Pústþjónustan bíður þér úrval af viðurkenndum vörum með 2ja ára ábyrgð. Val á smurolíu miðast við gerð hvers bíls. Góð olía og regluleg olíu og síu skipti getur haft veruleg áhrif á endingu véla og gangverk bílsins.

 

Bremsur - þjónustuverð

BremsurBremsubúnaður er sennilega mikilvægasti öryggisþáttur hvers bíls, viðhaldsþáttur sem alls ekki má gleyma. Það gefur auga leið að enginn vill lenda í því að missa bremsur í akstri.

Við hjá Pústþjónustunni erum fagmenn á þessu sviði og erum fljótir að skipta um bremsuklossa,

 

Fjöðrun - þjónustuverð

Fjöðrun

Demparar og gormar eru hluti af einingu sem ræður aksturseiginleikum bílsins. Lélegir demparar eða gormar auka hemlunarvegalengd og draga úr aksturseiginleikum. Bíllinn getur einfaldlega orðið hættulegur, sérstaklega á ójöfnum vegum.

 

Rafgeymar - þjónustuverð

Rafgeymar

Rafgeymir á það til að bila þegar illa viðrar eða kalt er í veðri. Ekki lenda í því að þurfa bogra yfir rafgeyminum í norðan stórhríð og kulda. Pústþjónustan mælir ástand geymisins í bílnum þínum, þannig má komast að því hvort á hann sé treystandi.

 

Önnur þjónusta - verð

Önnur þjónusta

Til að minnka óþægindi bílaeiganda bíður Pústþjónustan líka uppá aðra þjónustu sem oft er látin sitja á hakanum. Önnur þjónusta innheldur: peruskipti, þurrkublaðaskipti, áfylling rúðuvökva og annað smálegt.

 
Borði
Sími 565 1090 | Opið:

Kort af staðsetningu BJBMánudaga - fimmtudaga kl. 08:00 - 18:00
Föstudaga kl. 08:00 - 16:30
Lokað um helgar. Yfir háannatíma er opið á laugardögum og er það auglýst sérstaklega og birt hér á vefnum.

Borði
Borði
bjb_myndir07.jpg


BJB   |   Flatahrauni 7   |   220 Hafnarfirði   |   Sími 565 1090   |   Fax 565 1093