Thumbnail imageBJB bíður nú nýja þjónustu og hefur fjárfest í nýrri og vandaðri míkróskurðarvél. Boðið verður upp á míkróskurð fyrir 30 – 35” dekk. Fjórar mismunandi skurðargrófleikar eru í boði 4-10mm milli skurða, einnig eru í boði fjórir mismunandi dýptarmöguleikar 4-10mm. Í 10-15 ár hafa jeppa menn nýtt sé eiginleika míkróskurðar og mest þeir sem stunda jöklaferðir og annan erfiðan akstur s.s milli landshluta.

En alltaf er að verða algengara að hinn almenni jeppa eigandi láti míkróskera dekkin á sínum venulega jeppa sökum fenginnar reynslu þessara manna. Míkróskurður gefur mikið aukið grip í snjó og hálku og ekki bara það einnig lengir hann endingu dekkjanna vegna aukinnar kælingar sem verður í dekkinu við að gúmmíð opnar sig fyrir aukið loftflæði. Hljóðmengun er líka minnkandi við að dekk eru míkróskorin.